Sokkalabbarnir

4.690 kr

Dag einn fer hvítur sokkur í þvottavélina og snýst þar, hring eftir hring, þar til hann þýtur inn í dularfulla og litríka ævintýraveröld handan okkar heims. 

Í landi Sokkalabbana búa tilfinningaríkir sokkar í ýmsum litum. Með lestri bókarinnar læra börn að tala um og skilja hinar ýmsu tilfinningar, hvort sem þær eru erfiðar, skrítnar eða skemmtilegar.  

Höfundar bókarinnar eru rit-og myndhöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir og leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson sem bæði hafa skarað fram úr, hvort á sínu sviði. Hér leiða þau saman hesta sína í gullfallegri sögu fyrir lítil börn með stórar tilfinningar.

Þessi bók er sú fyrsta í bókaflokknum um Sokkalabbana. Bækurnar verða hluti af stærri heimi, þ.m.t. sjónvarpsþáttum.

Höfundar: Bergrún Íris Sævarsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson